………

Blessaðu drottinn þetta hús,

alla daga og nætur.

Blessaðu stoðir þess,

heilar og traustar

þak þess og háf,

innviði all og hússins sál.

Blessaðu ljóra þess

svo ljós þitt fangi,

í birtu og kærleik

alla er innum dyr þess gangi.

Blessaðu hjörtun í lífi þess,

svo gleði og góðan anda beri,

í verkum sínum hvern dag með þér.

…….

SS   2007  ©
Undir áhrifum af \” Bless this house\”  Bless this house
Höf: May H. Brahe (1885-1956)