Rebbasögur

Rebbi og Drengur

Rebbi og lambið Gimbur

Rebbi og fákurinn Gráni

Rebbi og minkurinn Minki

Rebbi og örninn Össi

Rebbi og Tóta tófa

Blessun húss.

Blessaðu drottinn þetta hús,
alla daga og nætur.
Blessaðu stoðir þess,
heilar og traustar
þak og innviði alla
sem hússins sál.

Blessaðu ljóra þess
svo ljós þitt fangi,
í birtu og kærleik
alla sem inn í húsið gangi.

Blessaðu hjörtun í lífi þess,
svo gleði og góðan anda beri,
í verkum sínum hvern dag með þér.

 

SS   2007  ©
Undir áhrifum af \“ Bless this house\“
Höf: May H. Brahe (1885-1956)

Sumarið.

 

Vetrarmyrkrið seig í hafið

og heldrunginn smásaman vék,

og glóðin sem kuldi hafði hamið

reis upp og sagði;  vorið er hér.

 

Fuglar berjast til kaldalands

byr og sól í öllum þeirra sögum,

birtan syngur doða í dans

og ómar dátt í sumarlögum.

 

Stúlkur með tagl á hjólum

í litfríðum sumarkjólum,

krakkar í leik á þunnum bolun

og gamlir menn með sí-ungum konum,

-segja;  nú er sumarið komið.

 

SS©2008